,,Við byrjuðum leikinn ágætlega og náum inn marki. Svo varð þetta smá eltingaleikur, Blikarnir létu boltann ganga vel innan liðsins en fannst þeir ekki skapa mikið. Það var ákveðið að bakka aðeins með liðið í seinni hálfleik mér fannst það ganga vel," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH eftir 0-1 sigur á Breiðablik í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 0 - 1 FH
,,Pressan kom mér ekki á óvart. Í fyrri hálfleik leystum við þetta ekki nógu vel með því sem við áttum að gera. Við leystum þetta vel í markinu, en svo voru aðrir möguleikar sem við vorum ekki að nýta vel en Kópavogsvöllur er einn erfiðasti útivöllurinn en við erum hæstánægðir með þrjú stig."
,,Varnarleikurinn var á löngum köflum mjög sterkur og þeir hafa náð virkilega vel saman og þú ert ekki alltaf að spila brasilískan bílastæðabolta og stundum þarf að múra fyrir markið og halda markinu hreinu og við höfum gert það nokkrum sinnum, sem er ágætt."
,,Í þessum leik er best að hugsa um sjálfan sig, það er farsælast. Við erum bara ánægðir með þessi þrjú stig og við einbeitum okkur að okkur sjálfum. Það eru einhverjir tíu dagar í næsta leik og við þurfum bara að æfa vel og mæta einbeittir í næsta leik," sagði Heimir.
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir





















