,,Ég var svolítið svekktur, þetta hefði verið fyrsta tímabilið sem ég hefði spilað hverja einustu mínútu en það breytir ekki miklu þó ég hefði spilað alla leiki," sagði Óskar Péturson markvörður Grindavíkur eftir 2-2 jafntefli við Fylki í dag en hann meiddist við annað mark Fylkis og varð að fara af velli.
,,Ekki missteig ég mig, það var klárlega brotið á mér, það fer ekki á milli mála."
Grindavík er fallið úr deildinni og verður því í 1. deild næsta sumar. Hvað verður framhaldið hjá Óskari?
,,Ég er samningsbundinn Grindavík og veit ekkert hvernig framhaldið verður hjá mér. Grindavík er mitt lið og það er engin kvöl að spila fyrir Grindavík. Hérna eru frábærir hlutir. Ég hef áhuga fyrir því."
Nánar er rætt við Óskar í sjónvarpinu að ofan.





















