Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 09. október 2012 14:49
Elvar Geir Magnússon
Kightly: Leikarar eins og Suarez eyðileggja fótboltann
 Luis Suarez og Dean Whitehead.
Luis Suarez og Dean Whitehead.
Mynd: Getty Images
Michael Kightly, leikmaður Stoke, segir að leikarar eins og Luis Suarez séu að eyðileggja fótboltann.

Suarez hefur verið í umræðunni í tengslum við leikaraskap og reyndi að fiska víti í leik Liverpool gegn Stoke.

„Þegar hann fær smá snertingu öskrar hann eins og hann hafi fótbrotnað. Í níu skipti af hverjum tíu finnur hann ekki fyrir þessu," segir Kightly.

„Þetta er eitthvað sem við verðum að vinna í að útrýma úr leiknum. Það er munur á því að fiska víti og að dýfa sér. Stundum vita leikmenn að það er að koma tækling, bíða eftir henni og fara niður. En það er ekki jákvætt fyrir leikinn þegar menn detta með tilþrifum eftir enga snertingu."
Athugasemdir
banner
banner
banner