Man Utd undirbýr tilboð í Baleba - Greenwood á óskalista Atletico - Milan vill selja Tomori
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fös 12. október 2012 07:20
Hafliði Breiðfjörð
Siggi Víðis: Vona að ég verði ekki rekinn ef við förum upp
Kvenaboltinn
Sigurður Víðisson mættur í Fjölnisgallann í gær.
Sigurður Víðisson mættur í Fjölnisgallann í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er mjög spenntur, þetta er skemmtilegt verkefni," sagði Sigurður Víðisson við Fótbolta.net í gær eftir að hafa skrifað undir samning um að þjálfa kvennalið Fjölnis í 1. deildinni næsta sumar.

Sigurður stýrði HK/Víkingi á síðustu leiktíð og kom liðinu upp í efstu deild eftir sigur í umspili við Fjölni sem hann tekur núna við. En hvernig líst honum á liðið?

,,Ég sá tvo leiki í sumar, þessa tvo leiki sem við spiluðum við þær. Þetta er flott lið og risaklúbbur. Við eigum að koma þeim upp í úrvalsdeild og vera þar."

Liðið er alveg nægilega gott til að fara upp. við vinnum í vetur og sjáum til. Ég á ekki von á að styrkja liðið, við ætlum að spila á okkar mannskap eins og er."

Sigurður kom HK/Víkingi upp úr 1. deildinni og vildi halda áfram með liðið en félagið ákvað að skipta um þjálfara.

,,Þeir tóku ákvörðun, ekki ég, svo þú verður að ræða við þá um það. En ég er ekkert að grenja það, það þýðir ekki. Ég hefði viljað fara upp í úrvalsdeild og spila þar og standa okkur vel. En það er bara búið."

Theódór Sveinjónsson sem þjálfaði hitt liðið sem fór upp, Þrótt, var látinn taka pokann sinn eftir mótið svo báðir nýliðarnir skiptu um þjálfara. Sigurður grínaðist um ákvæði í samningi sínum um að hann yrði látinn fara ef liðið færi upp.

,,Gárungarnir segja að maður verði rekinn ef maður fer upp. Það kemur bara í ljós, ég vona ekki. Við förum bara upp og sjáum til."
Slapp
banner