„Ég er búinn að bíða eftir þessum leik síðan þær komust síðast á EM. Ég og Fanndís sátum þá í stúkunni," sagði Hallbera Guðný Gísladóttir landsliðskona fyrir æfingu í morgun,
Ísland fær Úkraínu í heimsókn á morgun í umspili fyrir EM en fyrri leikurinn ytra vannst 3-2.
Ísland fær Úkraínu í heimsókn á morgun í umspili fyrir EM en fyrri leikurinn ytra vannst 3-2.
„Við komumst í 2-0 úti og það var klaufaskapur af okkar hálfu að klára þetta ekki enn meira sannfærandi. En þær eru með gott lið og við verðum að mæta brjálaðar í leikinn."
Gísli Gíslason, faðir Hallberu, var fararstjóri landsliðsins í Úkraínu. Þurfti hann að gangast undir busavígslu í ferðinni.
„Mér leið hálfilla þegar verið var að vígja hann. Hann þurfti að semja lag um æsku mína og dansa Gangnam style og syngja með."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















