„Við ætluðum að spila betur en í fyrri leiknum. Ég get ekki sagt að við höfum spilað fallegan fótbolta á köflum en við náðum þessu samt. Ég held að við höfum unnið þetta á baráttu, sigurvilja og karakter," sagði Sara Björk Gunnarsdóttir í viðtali við Fótbolta.net eftir 3-2 sigurinn á Úkraínu.
„Þetta var mjög mikið copy paste af fyrri leiknum. Við ætluðum að halda boltanum betur og náðum því á köflum en svo misstum við einbeitinguna aftur en eins og í fyrri leiknum þá komum við til baka og unnum leikinn."
Úkraínska liðið lék heldur grófan leik og Sara Björk var til að mynda toguð niður á hárinu í síðari hálfleik. Hún sagði að það hafi verið erfitt að halda einbeitingu við þær aðstæður.
„Þær voru frekar grófar og ógeðslegar. Maður reyndi að láta það ekki pirra sig. Það var mjög erfitt en maður reyndi að halda fókus allan tímann."
Hægt er að horfa á allt viðtalið við Söru í sjónvarpinu hér að ofan.





















