Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. júlí 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Hodgson: Arsenal ekki nálægt verðmiðanum hjá Zaha
Zaha skoraði á Emirates á síðasta tímabili.
Zaha skoraði á Emirates á síðasta tímabili.
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, segir að Arsenal sé langt frá því að koma með nægilega hátt tilboð í framherjann Wilfried Zaha.

Arsenal ku hafa boðið 40 milljónir punda í Zaha á dögunum en Crystal Palace taldi það tilboð vera alltof lágt.

„Ég held að Arsenal hafi ekki komið með tilboð sem er nálægt verðmiðanum okkar," sagði Hodgson.

„Ég er viss um að leikmaðurinn áttar sig á að ef einhver ætlar ða taka hann frá okkur þá getum við reiknað með að það félag borgi eðlilegt markaðsvirði."

„Þangað til einhver gerir það þá er ekki mikið sem við getum rætt um Wilf."

Athugasemdir
banner
banner
banner