mið 24. júlí 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Félög í Pepsi-deildinni berjast um Svein Margeir
Sveinn Margeir í leik með Dalvík/Reyni.
Sveinn Margeir í leik með Dalvík/Reyni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nokkur félög í Pepsi Max-deildinni hafa lagt fram tilboð í Svein Margeir Hauksson miðjumann Dalvíkur/Reynis samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net.

Líklegt er að Sveinn Margeir verði seldur frá Dalvík/Reyni á næstu dögum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er möguleiki á að hann verði síðan lánaður aftur í Dalvík/Reyni út tímabilið.

Hinn 18 ára gamli Sveinn Margeir hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki hjá Dalvík/Reyni undanfarin tvö tímabil.

Í fyrra var hann valinn í lið ársins þegar Dalvík/Reynir vann 3. deildina.

Í sumar hefur hann síðan spilað tólf leiki með Dalvík/Reyni í 2. deildinni en liðið er í 7. sæti, fjórum stigum frá 2. sætinu.
Slapp
banner
banner
banner