„Við vitum að við erum að fara að mæta góði liði og við erum spenntir fyrir leiknum," sagði Mats Möller Dæhli miðjumaður Freiburg og norska landsliðsins í viðtali við Fótbolta.net í dag.
Mats verður í eldlínunni þegar Noregur heimsækir Ísland í vináttuleik annað kvöld. Norðmenn eru komnir á annað ár undir stjórn Lars Lagerback en hann tók við liðinu í fyrra.
Mats verður í eldlínunni þegar Noregur heimsækir Ísland í vináttuleik annað kvöld. Norðmenn eru komnir á annað ár undir stjórn Lars Lagerback en hann tók við liðinu í fyrra.
„Hann hefur breytt miklu. Við erum með nýja hugmyndafræði. Þetta er ekki nýtt hjá honum, hann hefur gert sömu hluti lengi, en þetta er nýtt fyrir okkur. Við erum að venjast þessu. Við vitum hvað hann vill og erum að reyna að sýna það inni á vellinum," sagði Mats.
Norðmenn horfa til Íslendinga og vilja ná svipuðu ævintýri og Ísland náði á EM í Frakklandi.
„Það væri ótrúlegt að gera eitthvað eins og Ísland gerði á EM. Það var mjög vel gert. Við vorum ánægðir fyrir hönd Íslendinga en við viljum upplifa þetta einn daginn."
Mats spilaði með Cardiff í ensku úrvalsdeildinni á sínum tíma en þar var Aron Einar Gunnarsson liðsfélagi hans. Þeir mætast ekki á morgun þar sem Aron er að ná sér eftir meiðsli.
„Ég heyrði að hann er meiddur og það er synd. Vonandi get ég hitt hann samt og heilsað upp á hann," sagði Mats. „Ég kann mjög vel við hann. Hann er baráttujaxl, góður leiðtogi og með góða tækni. Hann hefur mikil gæði og Ísland er heppið að hafa hann sem fyrirliða."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Ísland og Noregur mætast á Laugardalsvelli klukkan 20:00 annað kvöld en miðasalan fer fram á midi.is.
Athugasemdir























