Íslenska kvennalandsliðið mætir heimsmeisturum Spánar á útivelli í undankeppni HM á morgun. Sveindís Jane Jónsdóttir er lykilmaður í íslenska liðinu og ræddi hún við Fótbolta.net í gær.
„Þetta er mjög spennandi, alltaf gaman að spila svona leiki og á móti svona góðum leikmönnum. Ég held að við séum allar mjög spenntar og klárar í verkefnið. Við vitum að þetta verður mjög erfitt og maður verður líka bara reynslunni ríkari. Það er gaman að máta sig á móti svona góðum leikmönnum," segir Sveindís.
„Þetta er mjög spennandi, alltaf gaman að spila svona leiki og á móti svona góðum leikmönnum. Ég held að við séum allar mjög spenntar og klárar í verkefnið. Við vitum að þetta verður mjög erfitt og maður verður líka bara reynslunni ríkari. Það er gaman að máta sig á móti svona góðum leikmönnum," segir Sveindís.
Það má búast við því að spænska liðið verði meira með boltann í leiknum á morgun og íslenska liðið sættir sig við það. Einn helsti styrkleiki Sveindísar er hraðinn sem hún býr yfir og hún er tilbúin að nota hann.
„Við vitum allar að við erum ekki að fara vinna þær í því að halda boltanum og við erum í lagi með það - þær mega halda í boltann. Við viljum nýta þær sóknir sem við fáum og vonandi get ég nýtt hraðan minn, og aðrir leikmenn líka, þannig að við náum að setja inn einhver mörk og vonandi halda hreinu."
„Undirbúningurinn hefur verið nokkuð góðar, búnar með þrjár æfingar og það hefur gengið vel, við höfum farið mjög djúpt yfir varnarleikinn því við vitum að þær eru með frábæra leikmenn í sínu liði. Við vitum að við þurfum að verjast lengi, í 90 mínútur plús. Við höfum líka farið aðeins yfir sóknarleikinn og séð hvar er hægt að sækja á þær. Það er galopið fyrir okkur, þær halda boltanum mjög vel og kannski nenna ekki jafnmikið að verjast - við verðum að nýta okkur það," segir Sveindís.
Leikurinn á morgun hefst klukkan 18:00 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og beinni útsendingu á RÚV. Spilað verður á Estadio Municipal de Castalia sem er í Castellon de la Plana.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir























