Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
Venni: Get ekkert farið að sparka í ruslatunnur eða urðað yfir menn
Hemmi hafði ekki tíma í að einbeita sér að leiknum - „Það voru allir að biðja um skiptingu"
Liam Daði: Við stefnum á Laugardalsvöll og það er ekkert flókið
Karl Ágúst talar um hátt spennustig - „Allt undir á sunnudaginn"
Haraldur Freyr: Það er bara hálfleikur í þessu
Gunnar Heiðar um rauða spjald Diouck: Leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern svona leik
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
   fös 04. september 2015 22:41
Gunnar Birgisson
Toddi Örlygs: Ekki búnir að ná í eins mörg stig og okkur hefði dreymt um
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Gott að Guðmundur skyldi stíga upp og klára, tók gott víti, mjög öruggt," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari HK eftir 1-0 sigur hans manna á Fram í Kórnum í kvöld.

Lestu um leikinn: HK 1 -  0 Fram

„Það var mjög gott að klára þennan leik og taka þessi þrjú stig og gefur okkur kannski smá von að fara örlítið ofar og ná í fleiri stig."

„Munurinn í dag var sá að leikmenn lögðu sig fram, höfðu trú á verkefninu og kláruðu mjög góðan leik."

„Maðurinn sem kom inná var búinn að brjóta oft af sér og var mjög ákafur. Þeir sem stóðu nær vildu meina að hann hefði hlaupið Aron niður."

„Við erum ekki búnir að ná í eins mörg stig og okkur hefði dreymt um," sagði Toddi að lokum.
Athugasemdir
banner