Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 06. febrúar 2023 14:17
Elvar Geir Magnússon
Ásakanirnar á hendur Man City útskýrðar - Mancini með falinn samning
Pep Guardiola spjallar við Sheikh Mansour, eiganda Manchester City.
Pep Guardiola spjallar við Sheikh Mansour, eiganda Manchester City.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Roberto Mancini.
Roberto Mancini.
Mynd: Getty Images
Etihad, heimavöllur City.
Etihad, heimavöllur City.
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
The Times hefur tekið saman fréttaskýringu þar sem fjallað er um þær ásakanir sem eru á hendur Manchester City um að hafa ítrekað svindlað í fjárhagsmálum á árunum 2009-2018. Hér að neðan má sjá samantekt á þeirri fréttaskýringu.

Manchester City málið:
Enska úrvalsdeildin sakar Man City um að hafa brotið fjárhagsreglur
Stig gætu verið dregin af Man City
Býst við að langt sé í niðurstöðu í máli Man City
Man City: Hlökkum til að þetta mál verði til lykta leitt í eitt skipti fyrir öll



Ákærurnar útskýrðar - og af hverju hefur þetta tekið þennan tíma?
Talið er að fjögurra ára rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar á Manchester City hafi beinst að tveimur meginþáttum: Styrktarsamningum þar sem grunur leikur á að peningarnir hafi komið frá eigendum félagsins og að því er virðist leynilegur skuggasamningur fyrir fyrrverandi stjóra félagsins, Robert Mancini.

Margar ásakananna komu fram fyrst fram í skjölum Football Leaks sem portúgalski tölvuhakkarinn Rui Pinto náði í og þýski miðillinn Der Spiegel fjallaði um. Þetta eru sömu atriði sem leiddu til ákærunnar á hendur City af ensku úrvalsdeildinni.

Hverjar eru ásakanirnar varðandi samning Mancini?
Skjölin sem Der Spiegel fjallaði um þykja sýna það að Roberto Mancini, Ítalinn sem var stjóri City 2009-2013, hafi fengið leynilegar greiðslur gegnum falinn samning varðandi ráðgjafahlutverk hjá Al Jazira í Abú Dabí.

Fyrsti samningur Mancini við City var með grunnlaun upp á 1,45 milljónir punda að frádregnum skatti en fyrirtæki hans á Ítalíu fékk 1,75 milljónir punda sem ráðgjafi fyrir Al Jazira. Hann þurfti að skuldbinda sig við að þjálfa hjá félaginu í fjóra daga ári.

Tölvupóstar sem Der Spiegel opinberaði virðast sýna að fyrirtæki hans, Italy International Services (IIS), hafi gefið út ársfjórðungslega reikninga til City, sem sendi peningana til Abu Dhabi United Group (ADUG) - undir forystu Sheikh Mansour, eiganda City - sem síðan áframsendi á Al Jazira til greiðslu.

Skjölin sem láku áttu að sýna að Simon Pearce, stjórnandi hjá City og ráðgjafi furstafjölskyldunnar í Abú Dabí, vissi af samkomulaginu. Mancini hefur neitað að tjá sig þegar hann er spurður um Al Jazira samninginn.

Hverjar voru ásakanir UEFA?
UEFA setti City í tveggja ára bann frá Evrópukeppnum fyrir að gefa upp of háar tölur í styrktargreiðslur í bókhaldi sínu og í upplýsingum sem sendar voru til sambandsins milli 2012 og 2016. Um er að ræða tugi milljóna punda.

Bannið var hinsvegar fellt niður af alþjóðlega íþróttadómstólnum CAS (Court of Abritration for Sport) sem úrskurðaði að sum af meintum brotum væru fyrnd, þau hefðu átt sér stað fyrir svo löngu síðan, eða höfðu ekki verið staðfest til fullnustu.

Enska úrvalsdeildin er ekki með neinar reglur um að brot fyrnist og ekki með úrræði sem leyfa City að áfrýja til CAS.

Voru einhverjar fleiri ásakanir?
Der Spiegel fullyrti að ADUG hefði borgað um 3,5 milljónir punda til umboðsmanns Yaya Toure milli 2010 og 2015, þegar miðjumaðurinn var leikmaður City. Greiðslur sem framkvæmdastjóri félagsins, Ferran Soriano, og stjórnarformaðurinn Khaldoon Al Mubarak virðast hafa framkvæmd.

Hvað hefur City sagt um ásakanirnar?
City hefur alltaf haldið því fram að félagið hafi ekki gert rangt og að ásakanirnar séu byggðar á hökkuðum tölvupóstum sem hafi verið teknir úr samhengi.

Af hverju hefur rannsóknin tekið svona langan tíma?
Fyrir utan að vera flókin rannsókn sem nær yfir fjölda ásakana hefur enska úrvalsdeildin haldið því fram að félagið hafi beitt aðferðum til að tefja hluti þegar þeim var gert skylt að afhenta skjöl.

Tveimur árum eftir að rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar hófst skipaði gerðardómur City að veita úrvalsdeildinni „tiltekin skjöl og upplýsingar og framkvæma fyrirspurnir til þriðja aðila,“ sagði í úrskurði áfrýjunardómstóls árið 2021. Manchester City er sagt hafa sent inn eins margar athugasemdir og mögulegt var til að draga það á langinn að þurfa að veita upplýsingar.

City réði til starfa þungavigtar lögfræðiteymi til að verja sig, í forystu Lord Pannick, KC.

Af hverju hefur verið fjallað svona lítið um þessa rannsókn?
Enska úrvalsdeildin og City hafa bæði viljað að rannsóknin færi fram bak við luktar dyr. Reyndar sóttu báðir aðilar um að halda málsmeðferð Hæstaréttar leyndri en því var hafnað
Athugasemdir
banner
banner