Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 06. mars 2023 15:00
Elvar Geir Magnússon
Þrír snúa aftur hjá Chelsea
Reece James.
Reece James.
Mynd: Getty Images
Reece James, Christian Pulisic og N'Golo Kante snúa aftur hjá Chelsea þegar liðið fær Borussia Dortmund í heimsókn í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Dortmund vann 1-0 sigur í fyrri leiknum í Þýskalandi.

James, Pulisic og Kante æfðu allir í morgun samkvæmt Athletic.

James hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri en mögulegt er að hann fari beint inn í byrjunarliðið. Hann hefur spilað afskaplega vel í stöðu vængbakvarðar

Graham Potter hefur ekki enn náð að finna sitt besta byrjunarlið og liðinu gengið illa að skora mörk. En um liðna helgi vannst kærkominn 1-0 sigur gegn Leeds í deildinni þar sem Wesley Fofana skoraði eina markið.
Athugasemdir
banner
banner
banner