Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, var í landsliðshópnum sem Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, tilkynnti á föstudag. Ásta er 28 ára og spilar oftast sem hægri bakvörður. Hún á að baki átta landsleiki en spilaði síðast með landsliðinu haustið 2019.
Fyrir tímabilið 2020 ákvað Ásta að stofna fjölskyldu og lék ekkert það tímabilið. Hún var svo mætt aftur í síðasta tímabil og lék sautján af átján deildarleikjum liðsins er það endaði í öðru sæti, lyfti bikarmeistaratitlinum og leiddi sitt lið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar síðasta haust.
Ásta ræddi við Fótbolta.net í viðtali í dag. „Það var mjög skemmtilegt að fá kallið frá Steina. Ég var búin að leyfa mér að vona og ég fékk alveg feitan hnút í magann þegar ég sá skilaboð frá Steina. Það var mjög gaman og var markmiðið þegar ég byrjaði aftur að æfa eftir barnsburð," sagði Ásta.
„Steini er ekki oft í því að flækja málin, spurði bara hvort ég væri í góðu standi og eðlilega sagði ég bara já og svo sagði hann að hann ætlaði að velja mig í hópinn fyrir mótið í Bandaríkjunum. Meira var það ekki, ég hafði ekkert heyrt í honum í vetur en hafði þetta alltaf á bakvið eyrað, alltaf að stefna að þessu og skemmtilegt að fá kallið núna. Þetta var mikil gleði og ánægð með mig að komast aftur í hópin. Það er ekki nóg að vera bara valin, ég þarf að nýta tækifærið og sýna að ég eigi heima þarna."
Landsliðið mun taka þátt í SheBelieves Cup - æfingamóti í Bandaríkjunum og fer hópurinn út næsta sunnudag.
„Mér líst mjög vel á þetta verkefni, ég er lengi búin að fylgjast með þessu móti, þetta er risastórt og mikil umgjörð í kringum bandaríska landsliðið. Það verður held ég mjög skemmtilegt að taka þátt í þessu. Þetta verður hörkuerfitt, mikil áskorun og mjög gott mót fyrir landsliðið að fara á í undirbúningi fyrir EM."
Finnst þér þú sem leikmaður vera á öðrum stað en þú varst á síðast þegar þú varst í landsliðinu?
„Ég veit það ekki, mér finnst ég eiga smá inni ennþá og er að vinna í að komast í mitt besta, besta form - ef ekki betra en ég var í áður. Mér finnst ákveðnir hlutir hafa breyst aðeins en samt líður mér bara vel og finnst ég hafa gert ágæta hluti," sagði Ásta.
Viðtalið er talsvert lengra og má sjá það í heild sinni í spilaranum að ofan.
Hún ræðir um síðasta tímabil, Meistaradeildina, mögulega atvinnumennsku og Kristínu Dís systur sína.





















