Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. janúar 2023 15:42
Aksentije Milisic
Byrjunarlið Íslands: Fyrsti landsleikur Nökkva
Guðlaugur Victor Pálsson er fyrirliði.
Guðlaugur Victor Pálsson er fyrirliði.
Mynd: KSÍ

Ísland mætir Eistlandi í vináttuleik í dag á Algarve í Portúgal en leikurinn hefst klukkan 17.


Lestu um leikinn: Eistland 1 -  1 Ísland

Byrjunarlið Ísland er klárt en Nökkvi Þeyr Þórisson, leikmaður Beerschot í Belgíu, er í byrjunarliðinu og mun hann því spila sinn fyrsta landsleik.

Aron Sigurðarson spilar sinn fyrsta landsleik í fimm ár en Guðlaugur Victor Pálsson er fyrirliði.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á ViaPlay og í beinni textalýsingu á Fótbolta.net en byrjunarlið Íslands má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið Íslands:
Byrjunarlið:
12. Patrik Gunnarsson (m)
2. Valgeir Lunddal Friðriksson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
6. Damir Muminovic
11. Kristall Máni Ingason
15. Róbert Orri Þorkelsson
16. Dagur Dan Þórhallsson
17. Aron Sigurðarson
21. Arnór Ingvi Traustason
22. Andri Lucas Guðjohnsen
23. Nökkvi Þeyr Þórisson


Athugasemdir
banner
banner
banner