Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður ÍA, spilaði vel í dag gegn ÍR og lagði upp mark annan leikinn í röð.
Lestu um leikinn: ÍA 3 - 0 ÍR
„Það er bara frábært að ná að klára þetta, við vorum ekki nógu góðir í fyrri, svo sagði Jói það sem þurfti að segja í hálfleik og við rifum okkur aðeins upp og kláruðum dæmið," sagði Bjarki Steinn aðspurður um fyrstu viðbrögð eftir leik.
Bjarki Steinn byrjaði tímabilið á bekknum en hefur unnið sig inn í byrjunarliðið með góðri spilamennsku og hefur nú byrjað þrjá leiki í röð, Bjarki segist vera sáttur við sína spilamennsku.
„Já, ég er það. Ég er bara að reyna að koma mér inn í þetta og mér finnst ég vera að gera það ágætlega vel hingað til og held áfram að gera það sem ég þarf að gera."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir























