Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
banner
   lau 09. júní 2018 21:48
Ester Ósk Árnadóttir
Brynjar Björn: Þetta var ekki alveg okkar dagur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Já ég er bara nokkuð sáttur við stigið, erfiður völlur að koma á og fyrsti leikur okkar á grasi í sumar minni mig og bara gott að fá stig. Við komum til baka eftir að hafa lent undir þegar lítið er eftir af leiknum,"  sagði Brynjar Björn þjálfari HK eftir 2-2 jafntefli gegn Þór í hörkuleik á Akureyri. 

Lestu um leikinn: Þór 2 -  2 HK

HK náði ekki miklu spili í dag.

Spilamennskan hefur verið betri, ég get alveg viðurkennt það. Hvort sem það var grasið eða eitthvað sem vafðist fyrir okkur en við náðum litlu spili á milli okkar. Þetta var ekki alveg okkar dagur."  

Viktor Bjarki og Kári fóru báðir meiddir út af í dag. 

Viktor Bjarki var pínu tæpur fyrir leik, við tókum smá séns. Hann byrjaði leikinn og við vorum svona smá undirbúnir fyrir það að hann myndi mögulega koma út af snemma. Kári fékk slink á hnéið og við fyrstu sýn er það ekkert alvarlegt, vonandi ekki meira en tveir dagar. Það er stutt í næsta leik."  

HK er með 14 stig af 18 mögulegum eftir fyrstu 6. umferðirnar.

Já ég nokkuð sáttur við stigasöfnunina. Hefðum mögulega geta verið með tveimur stigum fleira en svona á heildina litið mjög flott, góð stigasöfnun í fyrstu leikjunum. Við bara höldum áfram í næsta leik." 

Næst leikur HK er toppslagur á móti ÍA á miðvikudaginn.

Mér líst gríðarlega vel á leikinn, toppslagir eru bara frábærir og gaman að taka þátt í því. Við komum bara gíraðir í þann leik eflaust eins og skagamenn. Það verður bara stemmning." 

Hægt er að horfa á viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner