„Eins og við var að búast, hörkuleikur. Virkilega ánægjulegt að enda tímabilið með sigri á móti meisturunum sjálfum. Gefur okkur bara mikið boost fyrir framhaldið." sagði Guðni Þór Einarsson, þjálfari HK eftir 1-0 sigur á Víkingi í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 HK
Tímabilinu er nú lokið og það stóðst ekki alveg undir væntingum hjá Guðna.
„Við vildum að sjálfsögðu fara upp, en þegar á öllu er á botnin hvolft þá tapaðist tímabilið bara á allskonar leikjum hér og þar. Náum ekki að safna nógu mörgum sigrum. Eftir á að hyggja erum við bara að taka eitt skref fram á við. Þetta var svona fyrsta árið sem við reynum virkilega að fara upp og það tókst bara ekki í fyrstu tilraun."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan
Athugasemdir