Arsenal líklegt til að fá Eze - Arsenal hefur enn ekki náð samkomulagi um Gyökeres - Napoli vill Nunez
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
Heimir Guðjóns: Vítið sem Stjarnan fékk var rangur dómur
„Ekki búin að því og ég veit ekki hvort maður muni gera það"
Svaf ekki mikið - „Þurfum að nota þetta sem spark í rassinn"
Sár, svekkt og leið - „Ég er ekki sú ferskasta núna"
„Þetta er ekki upplifun sem ég hef fengið áður"
Steini: Ég er með samning áfram
Guðrún: Mikið af knúsum og ekki mikið af orðum
Cecilía: Leiðinlegt að hafa ekki gert meira fyrir þau
Karólína Lea: Það er langt síðan ég hef grenjað svona
Magnað viðtal við Glódísi - „Mun aldrei fyrirgefa mér það"
Ingibjörg meyr: Við ætlum að fokking vinna Noreg
Dagný: Ég hefði viljað ná að brjóta
Haddi: Ég skil ekki af hverju allir efast um Viðar
Ívar Örn: Það fer okkur mjög vel að spila hér í Laugardalnum
Grímsi: Vonandi er stíflan brostin sem ég er búinn að vera að glíma við
   fim 09. nóvember 2017 13:30
Elvar Geir Magnússon
Katar
Hjörtur Hermanns: Talaði síðast við Diego á táknmáli
Icelandair
Hjörtur Hermannsson.
Hjörtur Hermannsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson byrjaði í hægri bakverði í vináttulandsleiknum gegn Tékklandi í gær. Hjörtur er vanur því að leika í hjarta varnarinnar en fann sig nokkuð vel í bakverðinum.

„Það var djöfulli skemmtilegt að spila í bakverðinum, það er alltaf gaman að spila fyrir íslenska landsliðið. Ég er ekki með mikla reynslu í þessari stöðu en fannst ég leysa hana ágætlega. Það er fínt að vera með fjölhæfni," segir Hjörtur.

Hver er mesti munurinn á því að spila sem miðvörður eða sem bakvörður?

„Ætli það séu ekki öll hlaupin. Maður er ekki vanur þeim en ég er ungur og í fínu formi, svo það er ekki vandamál. Ég er ekki mest sóknarþenkjandi bakvörður í heimi. Ég reyni að sinna varnarskyldunni og styðja við strákana þarna frammi."

Þetta er annað landsliðsverkefni Hjartar með Diego Johannessyni. Diego kann ekkert í íslensku en er að læra ensku.

„Þetta er algjör toppnáungi. Við vorum herbergisfélagar í Los Angeles á síðasta ári. Hann hefur bætt sig þvílíkt í ensku síðan þá. Ég talaði bara við hann á táknmáli þá. Hann er að læra og er að komast betur inn í hópinn. Hann er bara flottur karakter," segir Hjörtur en Fótbolti.net ræddi við hann á æfingu í Doha í morgun.
Athugasemdir
banner