Þrátt fyrir 2-1 sigur Vals á ÍBV þá var Bjarni Ólafur Eiríksson, varnarmaður Vals, ekki ánægður með frammistöðu liðsins í kvöld.
„Spilamennskan var fyrir neðan allar hellur og ég er eiginlega í sjokki," sagði Bjarni við Fótbolta.net eftir leik.
„Ég bjóst við öðru Valsliði í dag eftir rassskellingu á móti Bröndby. Þetta var félaginu til skammar í dag og við áttum ekkert skilið út úr þessum leik."

„Við þurfum að gjöra svo vel og taka okkur saman í andlitinu. Við ætlum okkur að gera eitthvað í sumar en þetta sem við sýndum í dag er svo langt frá því sem við eigum að geta gert. Sérstaklega hérna á heimavelli. Þetta er óskiljanlegt."
Hvað geta Valsmenn bætt í sínum leik? „Það er ansi margt. Ég held að ég sleppi því að telja það allt upp. Þeirra hættulegustu færi eru þegar við töpum boltanum á miðjum vellinum og sjö af þessum tíu mörkum gegn Bröndby komu þannig. Við getum kannski byrjað þar."
Valur tapaði samanlagt 10-1 gegn Bröndby í Evrópudeildinni en síðari leikurinn var í Danmörku á fimmtudag. Er Evrópukeppnin að trufla Val?
„Að fá að taka þátt í Evrópukeppni er frábært og það eru algjör forréttindi. Þrátt fyrir að hafa skíttapað í þessum leikjum þá var virkilega gaman að taka þátt í þessu, Það á ekki að hafa slæm áhrif á okkur. Það er samt vont að tapa svona stórt. Við tökum reynsluna með okkur og komumst vonandi aftur í þessa keppni á næsta ári til að geta gert betri hluti," sagði Bjarni.
Athugasemdir