„Í fyrsta lagi er mér ískalt! En ég er mjög sáttur með sigurinn, hann var mjög mikilvægur í baráttunni sem við erum í. Bara gríðarlega ánægður,'' sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA eftir 4-2 sigur á Stjörnunni í Pepsi Max deild karla. Hallgrímur skoraði tvívegis og lagði upp eitt mark í sigrinum.
Lestu um leikinn: KA 4 - 2 Stjarnan
„Við ætluðum bara að mæta í leikinn og berjast á fullu. Við vitum að Stjarnan eru svolítið fyrir "fight" og við bara þurftum að mæta þeim í því og gerðum það svo sannarlega,'' sagði Hallgrímur þegar hann var spurður út í uppleggið á leiknum.
Daníel Laxdal fékk á sig víti snemma leiks, uppskar gult spjald fyrir og fékk svo að líta sitt annað gula spjald í lok fyrri hálfleiks. Var Hallgrímur sammála báðum dómum?
„Já, ég held að þetta hafi verið víti. Þar af leiðandi þarf hann að gefa honum gult spjald og hitt var svona appelsínugult, þegar hann tekur Almarr. Svo að já, sanngjarn dómur fannst mér.''
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir