Sigríður Lára lék sinn fjórða A-landsleik í kvöld þar sem hún lét finna vel fyrir sér á miðjunni. Í uppbótartíma fékk hún sitt annað gula spjald og varð því að fara af velli.
Lestu um leikinn: Ísland 0 - 1 Brasilía
Sigríður Lára lék sinn fjórða A-landsleik í kvöld þar sem hún lét finna vel fyrir sér á miðjunni. Í uppbótartíma fékk hún sitt annað gula spjald og varð því að fara af velli.
"Mér fannst þetta geggjað, við mættum til leiks með "attitude-ið" í lagi og börðum á þeim. Fyrri hálfleikurinn var mjög góður hjá okkur."
"Þetta getur ekki gerist betra, mæta Brasilíu með fulla stúku á Laugardalsvellinum."
Sísi er þekkt fyrir að vera föst fyrir og var leikurinn í kvöld engin undantekning. Undir lok fyrri hálfleiks fékk hún gult spjald fyrir að stöðva skyndisókn andstæðinganna. Í uppbótartíma renndi hún sér svo í óþarfa tæklingu og fékk verðskuldað annað gult spjald og þar með rautt.
"Ég þarf stundum að vera skynsamari en maður þarf samt að láta finna fyrir sér."
Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















