Eiður Benedikt þjálfari Fylkis þurfti að sætta sig við enn eitt tap í Pepsi-deild kvenna í sumar þegar Fylkir tapaði verðskuldað 2-0 gegn Þór/KA á heimavelli.
Eiður segir að liðið hafi ekki átt neitt skilið úr þessum leik.
Eiður segir að liðið hafi ekki átt neitt skilið úr þessum leik.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 2 Þór/KA
„Við vissum að þetta yrði spurning um hvort liðið myndi mæta og skora fyrsta markið. Það myndi skipta sköpum og þær gerðu það. Við unnum ekki nægilega á og brugðumst illa við."
„Við þurftum að gera skiptingu strax á fimmtu mínútu og það riðlaði aðeins til í vörninni. Maður hefði viljað sjá leikmenn bregðast betur við og stíga upp en svona er þetta."
Fylkisliðið byrjaði fyrri hálfleikinn betur og voru sterkari aðilinn í stöðunni 0-0. Þær nýttu sér það ekki og voru norðanstúlkur marki yfir í hálfleik.
„Við höfum verið að spila seinni hálfleikina betur en þá fyrri og höfum verið markvisst að reyna laga það. Við náðum að laga það aðeins en það telur ekkert en það er hægt að taka það sem jákvætt úr þessum leik. Heilt yfir áttum við ekkert skilið úr leiknum."
Fylkir er með sjö stig í botnbaráttunni.
„Þetta er ekkert áhyggjuefni. Maður er að læra og við verðum að finna lausnir á þessu. Fólk má ekki gleyma því að við missum besta leikmann deildarinnar í krossbandarmeiðsli og það er þannig í kvennabolta að það kemur ekkert svona góður leikmaður nema úr bandaríska landsliðinu," sagði Eiður Ben.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir























