Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 14. febrúar 2023 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveindís hlauparinn og Glódís sér um að verja leikstjórnandann
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vefmiðillinn Soccerdonna ákvað að henda í skemmtilegan leik fyrir Superbowl síðasta sunnudag.

Soccerdonna fjallar alfarið um kvennaboltann en miðillinn ákvað að setja saman sóknarlínu í NFL með leikmönnum úr kvennaboltanum.

Í þessari sóknarlínu eru tvær íslenskar landsliðskonur.

Sveindísi Jane Jónsdóttur, leikmanni Wolfsburg í Þýskalandi, er stillt upp sem hlaupara í þessari sóknarlínu en það er ekkert skrítið í ljósi þess hve snögg hún er.

Þá er Glódís Perlu Viggósdóttur, miðverði Bayern München, stillt upp sem verði (e. guard) og er hennar hlutverk þá að verja leikstjórnandann. Glódís er einn besti varnarmaður í heimi og hefur hún sannað það hjá Bayern.

Alexia Putellas, leikmaður Barcelona, er leikstjórnandinn í þessari sókn en hún er besti leikmaður í heimi. Það er skemmtilegt að sjá tvær íslensku landsliðskonurnar í þessari sóknarlínu en hana má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner