Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   mið 15. febrúar 2023 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nagelsmann bjóst ekki við svona lítilli mótspyrnu
Mynd: Getty Images
Julian Nagelsmann stjóri Bayern Munchen var ánægður með sigur sinna manna á PSG í gær en leikstíll PSG kom honum mikið á óvart.

„Við áttum frábæran leik fyrstu 25 mínúturnar. Við vorum svolítið hissa á því að við fengum svona mikinn tíma á boltann. Við bjuggumst ekki við því að PSG myndi sýna svona litla mótspyrnu. Við áttum góðan fyrri hálfleik og jafnvel í upphafí síðari hálfleik. Maður sá hvað gerðist þegar Mbappe kom inn á," sagði Nagelsmann.

„Pavard átti góðan leik, það var synd að hann skildi fá seinna gula spjaldið, Upamecano og Matthijs de Ligt voru líka frábærir og Coman varðist vel."

Síðari leikur liðanna fer fram í Munchen eftir þrjár vikur.


Athugasemdir
banner
banner
banner