Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 15. febrúar 2023 09:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Romeo Beckham kom inn á og skoraði dramatískt sigurmark
Romeo í leik með Brentford.
Romeo í leik með Brentford.
Mynd: Getty Images
Romeo Beckham gerði sitt fyrsta mark fyrir varalið Brentford er liðið vann dramatískan sigur gegn Wealdstone í gær.

Romeo, sem er tvítugur að aldri, gekk í raðir Brentford í janúar síðastliðnum. Hann er sonur David Beckham sem átti stórkostlegan feril með Manchester United, Real Madrid, enska landsliðinu og fleiri liðum.

Romeo gerði sigurmarkið í gær, seint í leiknum. Brentford komst í 2-0 en Wealdstone jafnaði metin. Romeo gerði svo sigurmarkið stuttu áður en flautað var til leiksloka en hann hafði komið inn á sem varamaður þegar 15 mínútur voru eftir.

Leikurinn var í bikarkeppni en varalið Brentford er núna komið í undanúrslit ásamt liðum sem spila í ensku utandeildunum.

Romeo er á láni frá Inter Miami í Bandaríkjunum en pabbi hans er í eigendahópi félagsins.


Athugasemdir
banner