Fjölnismenn uppskáru 1 stig úr leik kvöldsins gegn Víkingum úr Ólafsvík í kvöld og var Ágúst þjálfari ekki sáttur með niðurstöðuna:
"Ég er frekar fúll með þetta. Það eru núna komnir nokkrir leikir í röð þar sem að vantar tempó í þetta. Gamla Fjölnisliðið sótti hratt og skapaði sér fullt af færum en við erum að skapa lítið núna."
"Ég er frekar fúll með þetta. Það eru núna komnir nokkrir leikir í röð þar sem að vantar tempó í þetta. Gamla Fjölnisliðið sótti hratt og skapaði sér fullt af færum en við erum að skapa lítið núna."
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 1 Víkingur Ó.
"Við erum að æfa mikið með fáum snertingum en þegar við komum í leikina erum við að klappa boltanum of mikið og missa hann á hættulegum stöðum og gefa andstæðingunum færi á okkur."
Næsti leikur Fjölnismanna er uppi á Skaga sem sitja rétt neðar í deildinni, það er aftur stórleikur í botnbaráttunni.
"Þú vinnur ekki leiki með því að spila svona, við þurfum að gíra okkur upp og hækka tempóið í öllu sem við erum að gera."
Nánar er rætt við Ágúst í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir






















