Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   þri 15. ágúst 2023 11:07
Elvar Geir Magnússon
Mamma Caicedo stal senunni þegar hann var kynntur hjá Chelsea
Caicedo með mömmu sinni. Myndin sem Chelsea lét endurgera.
Caicedo með mömmu sinni. Myndin sem Chelsea lét endurgera.
Mynd: Getty Images
Upprunalega myndin.
Upprunalega myndin.
Mynd: Twitter
Móðir Moises Caicedo stal senunni þegar sonur hennar var kynntur sem nýr leikmaður Chelsea í gær. Chelsea hefur keypt ekvadorska miðjumanninn frá Brighton.

Mynd af Caicedo frá því að hann var táningur hafði farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Á myndinni situr hann í skottinu á bíl, klæddur í Chelsea treyju og með móður sína sér við hlið.

Chelsea lét endurgera myndina og skrifaði við 'Þetta hefur alltaf bara verið Chelsea' en Caicedo segist hafa verið stuðningsmaður Chelsea í æsku og verið vanur því að horfa á liðið.

Í viðtali við heimasíðu Chelsea segir Caicedo að fjölskylda sín sé það mikilvægasta.

„Þau eru mér allt. Það er stórkostlegt að vera með mömmu og kærustuna mína mér við hlið. Ég er enn ánægðari hér með þær. Fjölskyldan er með mér á slæmum stundum og góðum. Ég hef alltaf fengið mikinn stuðning alla leið og ég hugsa stöðugt til minna nánustu."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner