„Ég var sáttur við seinni hálfleikinn, þá spiluðum við vel og komumst yfir en eftir það nýttum við ekki færin og fengum mark í bakið," sagði Heimir Guðjóns eftir 1-1 jafntefli við ÍBV í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 FH
FH komst yfir með marki Jeremy Serwy og virtist ætla að sigla 3 stigum í hús en fimm mínútum fyrir leikslok jafnaði ÍBV metin og jafntefli niðurstaðan.
„Við vorum að missa af mönnunum okkar og vorum ekki að dekka inni í teig, þetta er í þriðja skiptið sem við fáum á okkur mark á síðustu tíu mínútunum og það er eins og við náum ekki að skora annað og þriðja markið sem við þurfum," sagði Heimir.
Heimir vildi ekki kenna þreytu um að hafa misst leikinn niður.
„Það er leikjaálag en mér fannst við hafa góð tök á leiknum þannig að nei mér fannst ekki vera þreyta í mönnum,"
Þá sagði Heimir að þeir væru ekki á höttunum eftir Hrvoje Tokic, leikmanni Víkings Ó. eins og orðrómar höfðu verið um.
„Nei, það er ekkert til í því."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir






















