Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 16. nóvember 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Snjóboltinn rúllaði og Ben Brereton Diaz endaði í Síle
Ben Brereton Diaz, sóknarmaður Blackburn Rovers og landsliðs Síle.
Ben Brereton Diaz, sóknarmaður Blackburn Rovers og landsliðs Síle.
Mynd: Getty Images
Ben Brereton Diaz er með góða ástæðu til að vaka lengur venjulega í kvöld.

Landslið hans, Síle, mun nefnilega mæta Ekvador á eftir í undankeppni HM. Leikurinn hefst 00:15 að íslenskum og breskum tíma.

Sóknarmaðurinn spilar með Blackburn Rovers á Englandi, en hann byrjaði að spila með landsliði Síle í fyrra eftir að það komst upp að hann gæti spilað fyrir hönd þjóðarinnar.

Hinn 22 ára gamli Brereton Diaz hefur leikið allan sinn feril á Englandi og ólst upp í akademíu Manchester United. Sagan um það hvernig landsliðsferill hans byrjaði er mjög áhugaverð.

Móðir leikmannsins kemur frá Síle og minntist hann á það í leikjabæklingi fyrir leik hjá Blackburn árið 2018. Starfsmaður á vegum tölvuleiksins Football Manager sá þennan bækling og uppfærði þjóðerni leikmannsins í tölvuleiknum.

Alvaro Perez, Sílebúi sem streymir Football Manager á veraldarvefnum, komst að þessu þegar hann var að spila leikinn og byrjaði með herferð á samfélagsmiðlum til þess að vekja athygl á þessu. Snjóboltinn hélt áfram að rúlla og að lokum komst knattspyrnusamband Síle á slóðir um leikmanninn. Hann fékk hann símtal fyrir leik gegn Preston á síðasta tímabili. Hann þáði boðið og tók upp eftirnafn móður sinnar 'Diaz'. Þar áður var hann bara þekktur sem Ben Brereton.

Hann var fyrst valinn í landslið Síle síðasta sumar og spilaði á Copa America mótinu.

Hann fer núna þrisvar í viku í spænskutíma og vonast til að geta talað tungumálið reipirennandi í framtíðinni.

Þetta er ekki saga sem maður heyrir á hverjum degi. Sóknarmaðurinn, sem spilaði með Aaron Ramsdale og Mason Mount í yngri landsliðum Englands, vonast til að geta tekið þátt á HM með Síle á næsta ári. Hann verður ekki með í leiknum gegn Ekvador þar sem hann er í banni. Hann þarf að fylgjast með heima er Síle heldur áfram vegferð sinni í undankeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner