Halldór Jón Sigurður Þórðarson gekk í raðir ÍBV á dögunum frá Víkingi. Halldór er 25 ára kantmaður sem uppalinn er hjá Fram en leikið hefur með Víkingi undanfarin ár.
Dóri ræddi við Fótbolta.net um skiptin í ÍBV og tímabilið með Víkingi.
Dóri ræddi við Fótbolta.net um skiptin í ÍBV og tímabilið með Víkingi.
„Mér líst bara mjög vel á þetta, kíkti til eyja um síðustu helgi, hitti nokkra stráka, hitti Hemma og líst bara mjög vel á þetta. Ég hef flutt út á land áður fyrir fótbolta svo ég held að þetta verði ekkert mál," sagði Dóri sem lék á sínum tíma með Hetti á láni.
„Þegar ég heyrði að ÍBV hafði samband fyrst fékk ég strax góða tilfinningu fyrir þessu. Mér leið strax eins og þetta væri rétt. Þó að ég var að tala við önnur félög líka þá fékk strax góða tilfinningu fyrir ÍBV. Þannig ég ákvað að fylgja því eftir."
Fjölnir, Keflavík og Fylkir skoðuðu einnig möguleikann á því að fá Dóra í sínar raðir. Hann ræddi um tímabilið með Víkingi og má heyra hans svör í viðtalinu í spilaranum hér að ofan.
Hvað ertu að fara færa ÍBV með þínum kostum?
„Ég er vonandi að færa ÍBV eins mikið og ég get. Vonandi get ég sýnt baráttu inn á vellinum. Það er skemmtilegast að spila á hægri kantinum."
Daníel Geir Moritz sagði að þú værir ákveðið „wildcard". Tekuru undir það?
„Ég er alveg sammála því þar sem ég hef ekki spilað marga leiki þannig séð. Það eru ekkert endilega mjög margir sem þekkja mig eða kannast við mig. Wildcard er alveg satt þannig séð."
Dóri sagði að leikmenn ÍBV hefðu ekki haft áhrif þannig séð. „Þetta voru aðallega Hemmi og eyjar."
Við hverju býstu frá Hemma? „Ég býst við stemningu í kringum hann. Ég hitti hann um helgina og fékk strax mjög góða strauma frá honum. Ég var ennþá meira handviss um að þetta var rétt fyrir mig að fara til eyja," sagði Dóri sem er ánægður með komu Andra Rúnars Bjarnasonar til ÍBV.























