Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. febrúar 2023 22:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ramos þráir að vinna Meistaradeildina með PSG
Mynd: Getty Images

PSG hefur verið með einn sterkasta leikmannahópinn síðustu ár en aldrei tekist að vinna Meistaradeildina.

Hinn 36 ára gamli Sergio Ramos varnarmaður PSG í Frakklandi dreymir um að vinna Meistaradeildina með liðinu áður en ferlinum hans lýkur.


„Ég er þar sem ég vil vera og hjá félagi með löngun í að vinna Meistaradeildina. Ég vil gera allt sem ég get áður en ferlinum lýkur," sagði Ramos.

„Að vinna Bayern myndi senda jákvæð skilaboð. Til að vinna Meistaradeildina þarftu að vinna bestu liðin og Bayern er meðal þeirra á hverju ári. Bestu liðin vinna þó ekki alltaf."

Fyrri leikur liðanna fór fram í Frakklandi í vikunni þar sem gestirnir Frá Munchen unnu 1-0. Síðari leikurinn fer fram þann 8. mars í Þýskalandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner