Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. febrúar 2023 17:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag ánægður með liðsheildina: Margir geta sent boltann á Rashford
Mynd: EPA

Marcus Rashford er gríðarlega heitur um þessar mundir en hann skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Manchester United gegn Leicester í dag.


Erik ten Hag stjóri Manchester United tjáði sig um Rashford eftir leikinn en hann vildi hrósa öðrum leikmönnum liðsins líka.

„Hann er að koma sér í réttar stöður en ekki gleyma liðinu, þetta eru liðsmörk. Ég vil sérstaklega nefna Bruno, tvær frábærar stoðsendingar. Rashford verður að fá boltann, annars getur hann ekki skorað. Fred var líka með fallega stoðsendingu. Það eru svo margir leikmenn sem geta sent boltann á hann á réttu augnabliki," sagði Ten Hag.

United er svo sannarlega hluti af titilbaráttunni þar sem liðið er aðeins fimm stigum frá toppnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner