Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mán 19. nóvember 2018 21:14
Elvar Geir Magnússon
Albert: Eins og það hafi verið lagt upp með að sparka mig niður
Icelandair
Albert í leiknum í kvöld.
Albert í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er súr tilfinning að vinna ekki leikinn en það er alltaf gaman að spila fyrir land og þjóð," sagði Albert Guðmundsson eftir 2-2 jafntefli gegn Katar í kvöld.

Lestu um leikinn: Katar 2 -  2 Ísland

„Ég var betri í fyrri hálfleik en þeim síðari. Ég þarf kannski aðeins að vinna í því að halda þetta út," sagði Albert en hann var mikið sparkaður niður í fyrri hálfleik. „Það mætti halda það að þeir hafi lagt upp með að sparka mig niður, sérstaklega í fyrri hálfleik."

Albert átti einnig góðan leik gegn Belgum á fimmtudag og hann vonast til að vera að færast ofar í baráttunni um sæti í byrjunarliðinu.

„Ég vona það. Það vantaði fullt af leikmönnum og ég reyni að nýta öll tækifæri sem ég fæ. Við erum með klassa leikmenn í öllum stöðum og það er erfitt að komast í liðið en ég mun reyna mitt besta til að komast þangað."

Aðspurður út í umræðu um það hvort hann og Gylfi Þór Sigurðsson geti spilað saman sagði Albert: „Jú við erum góðir vinir, við getum alveg spilað saman."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner