Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. febrúar 2023 19:29
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Verðum að kaupa nýja leikmenn næsta sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jürgen Klopp segir það vera klárt mál að Liverpool þarf að gera breytingar á leikmannahópi sínum næsta sumar.


Liverpool hefur ekki átt góðu gengi að fagna á tímabilinu en liðið keypti einungis Darwin Nunez síðasta sumar og svo Cody Gakpo í janúar. Klopp telur breytinga vera þörf enda er Liverpool óvænt í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Það flækir hlutina að vera ekki í topp fjórum en við erum ennþá Liverpool og það er ekki eins og við getum ekki keypt neitt þó að við séum ekki í Meistaradeildinni," sagði Klopp

„Við verðum að kaupa inn nýja leikmenn, það er 100% klárt mál. Við verðum að gera breytingar í sumar. Það er augljóst og það átta sig allir á því. 

„Það er ekki í mínum höndum hversu mikið við getum gert en við erum í stöðugum samræðum og allir innan stjórnarinnar vita nákvæmlega hvað við þurfum til að bæta hópinn." 


Athugasemdir
banner
banner
banner