Pickford framlengir við Everton - Barcelona hyggst kaupa Rashford - Ekki framlengt við Lewandowski
banner
   lau 20. september 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Juve og Milan á útivelli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það eru þrír leikir á dagskrá í ítalska boltanum í dag þar sem Mikael Egill Ellertsson og félagar í liði Genoa heimsækja Bologna í fyrsta leik dagsins.

Mikael og félagar eiga enn eftir að vinna leik á nýju deildartímabili þar sem þeir sitja með 2 stig eftir 3 leiki. Andstæðingar þeirra Bologna eiga 3 stig.

Verona tekur þá á móti feykilega öflugu liði Juventus í síðdegisleiknum áður en Udinese fær Milan í heimsókn í kvöld.

Juve er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili á meðan Milan er með 6 stig og hefur verið að sýna jákvæðar breytingar undir stjórn Max Allegri.

Udinese hefur einnig farið vel af stað á nýju tímabili og er með einu stigi meira heldur en Milan.

Leikir dagsins
13:00 Bologna - Genoa
16:00 Verona - Juventus
18:45 Udinese - Milan
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 6 5 0 1 12 6 +6 15
2 Roma 6 5 0 1 7 2 +5 15
3 Milan 6 4 1 1 9 3 +6 13
4 Inter 6 4 0 2 17 8 +9 12
5 Juventus 6 3 3 0 9 5 +4 12
6 Atalanta 6 2 4 0 11 5 +6 10
7 Bologna 6 3 1 2 9 5 +4 10
8 Como 6 2 3 1 7 5 +2 9
9 Sassuolo 6 3 0 3 8 8 0 9
10 Cremonese 6 2 3 1 7 8 -1 9
11 Cagliari 6 2 2 2 6 6 0 8
12 Udinese 6 2 2 2 6 9 -3 8
13 Lazio 6 2 1 3 10 7 +3 7
14 Parma 6 1 2 3 3 7 -4 5
15 Lecce 6 1 2 3 5 10 -5 5
16 Torino 6 1 2 3 5 13 -8 5
17 Fiorentina 6 0 3 3 4 8 -4 3
18 Verona 6 0 3 3 2 9 -7 3
19 Genoa 6 0 2 4 3 9 -6 2
20 Pisa 6 0 2 4 3 10 -7 2
Athugasemdir
banner
banner