Enskir og franskir fjölmiðlar greina frá því að Arsenal, Tottenham og Borussia Dortmund hafa mikinn áhuga á Elye Wahi, ungum sóknarmanni Montpellier.
Wahi er fastamaður í byrjunarliði Montpellier og er kominn með 8 mörk í 21 deildarleik á tímabilinu.
Hann er aðeins 20 ára gamall og á níu leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands.
Wahi, sem hefur í heildina skorað 21 mark og gefið 5 stoðsendingar í 79 keppnisleikjum með aðalliðinu, er samningsbundinn Montpellier til 2025.
Athugasemdir