Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 21. febrúar 2023 12:30
Elvar Geir Magnússon
Maguire, Antony og Martial tæpir
Mynd: Getty Images
Það má gera ráð fyrir stórskemmtilegum leik á Old Trafford á fimmtudaginn þegar Manchester United tekur á móti Barcelona í umspili fyrir 16-liða úrslit Meistaradeildinnar.

Fyrri leikurinn í Katalóníu endaði með jafntefli 2-2.

Manchester United hefur gefið út upplýsingar um stöðuna á leikmannahópnum fyrir leikinn.

Varnarmaðurinn Harry Maguire og sóknarmennirnir Antony og Antony Martial eru allir tæpir.

Varnarmaðurinn Lisandro Martínez og Marcel Sabitzer eru klárir í slaginn eftir að hafa misst af fyrri leiknum vegna leikbanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner