Cunha færist nær Man Utd - Manchester liðin vilja Costa - Aston Villa íhugar að selja Ollie Watkins
   þri 22. apríl 2025 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aston Villa færist nær norska undrabarninu
Sverre Nypan.
Sverre Nypan.
Mynd: Rosenborg
Aston Villa er nálægt því að landa norska undrabarninu Sverre Nypan frá Rosenborg.

Félagið er við það að ná persónulegu samkomulagi við leikmanninn og því næst er það að ræða við Rosenborg um kaup á þessum bráðefnilega fótboltamanni.

Fabrizio Romano segir að það ríki mikil trú hjá Villa um að leikmaðurinn verði þeirra.

Þessi 18 ára gamli leikmaður er talinn einn af efnilegustu leikmönnum heims og var hann meðal annars á lista hjá Guardian yfir bestu leikmenn heims sem eru fæddir árið 2006.

Nypan spilaði sinn fyrsta leik með Rosenborg árið 2022 og síðan þá verið fastamaður í liðinu.

Í byrjun árs heimsótti Nypan nokkur úrvalsdeildarfélög og skoðaði aðstæður en honum leist best á verkefnið hjá Aston Villa. Greint var frá því að hin félögin sem hann skoðaði aðstæður hjá voru Arsenal og Manchester City.
Athugasemdir
banner