Argentínski miðvörðurinn Lisandro Martínez var valinn besti maður vallarins í 2-1 sigri Manchester United á Barcelona í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á Old Trafford í kvöld.
Martínez var eins og klettur í vörn United í leiknum og fékk 8 í einkunn frá Sky Sports fyrir frammistöðu sína.
Margir leikmenn United fá 7 en Wout Weghorst var slakasti maður enska liðsins með 5. Sergi Roberto og Raphinha fá sömu einkunn í liði Barcelona.
Man Utd: De Gea (7), Wan-Bissaka (7), Varane (7), Martinez (8), Shaw (7), Casemiro (7), Fred (7), Fernandes (7), Weghorst (5), Sancho (6), Rashford (7).
Varamenn: Antony (7), Dalot (7), Garnacho (7).
Barcelona: Ter Stegen (7), Kounde (6), Araujo (6), Christensen (6), Balde (7), De Jong (7), Busquets (7), Kessie (6), Raphinha (5), Roberto (5), Lewandowski (6).
Varamenn: Torres (6), Fati (6), Alonso (6)
Athugasemdir