Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. mars 2023 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gæti nýtt sér Henderson til að fá Kane - Stórliðin vilja Gnonto
Powerade
Líklegt þykir að Tottenham fái inn markvörð í sumar. Henderson er ofarlega á lista.
Líklegt þykir að Tottenham fái inn markvörð í sumar. Henderson er ofarlega á lista.
Mynd: EPA
Wirtz er mjög spennandi leikmaður.
Wirtz er mjög spennandi leikmaður.
Mynd: EPA
Gnonto hefur komið vel inn í hlutina hjá Leeds.
Gnonto hefur komið vel inn í hlutina hjá Leeds.
Mynd: EPA
Harry Kane, Kolo Muani, Florian Wirtz, Dejan Kulusevski, Romelu Lukaku og Wilfried Gnonto eru meðal manna í slúðurpakkanum í dag. BBC tekur saman það helsta og er pakkinn í boði Powerade.



Manchester United gæti nýtt sér áhuga Tottenham á Dean Henderson (26) til að sannfæra Spurs um að sleja Harry Kane (29). (ESPN)

Randal Kolo Muani (24) hjá Frankfurt hefur gefið í skyn að hann sé opinn fyrir því að fara í sumar. Franski landsliðsmaðurinn er með 105 milljóna punda verðmiða. (L'Equipe)

Manchester City hefur endurvakið áhuga sinn á Florian Wirtz (19) hjá Leverkusen. (90min)

Tottenham hættir á að missa af fyrrum stjóra félagsins, Mauricio Pochettino, í sumar því hann er ofarlega á lista Real Madrid ef Carlo Ancelotti fer. (Times)

Dejan Kulusevski (22) hefur sagt að hann vilji halda áfram hjá Tottenham og að óvissan í kringum Antonio Conte muni ekki hafa áhrif á það hvort félagið nýti sér kaupréttinn. Kulu er núna á láni frá Juventus. (Mail)

Chelsea hefur samþykkt að félagið verði að taka á sig talsvert tap ef Romelu Lukaku (29) verður seldur í sumar. (Football Insider)

Arsenal, Chelsea og Manchester City hafa áhuga á Wilfried Gnonto (19) sóknarmanni Leeds. (Gazzettan)

Juventus og Napoli eru á meðal ítalskra félaga sem einnig hafa áhuga á Gnonto. (90min)

Arsenal og Barcelona vonuðust til að fá Martin Zubimendi (24) í sínar raðir en hann ætlar sér ekki að fara frá Sociedad í lok tímabils. (Mail)

Barcelona hefur áhuga á Vanderson (21) varnarmanni Mónakó. (Sport)

Nokkur félög hafa sýnt áhuga á því að fá Brandon Williams (22) í sínar raðir frá Manchester United. (Football Insider)

Adrien Rabiot (27), miðjumaður Juventus, hefur gefið í skyn að hann væri til í að fara til Liverpool í sumar. (Sun)

PSG er tilbúið að selja Renato Sanches (25). Nokkur félög í ensku úrvalsdeildinni hafa fylgst með Portúgalanum. (90min)

Man Utd er að fá Harry Amass (16) í sínar raðir frá Watford. Amass er vinstri bakvörður og er United að vinna baráttuna við Chelsea um hans undirskrift. (Evening Standard)
Athugasemdir
banner
banner