Heimild: KSÍ

Í mars sendi UEFA fulltrúa sinn til Íslands, Svisslendinginn Thierry Favre, og skoðaði hann ummerki á keppnis- og æfingasvæði Grindvíkinga eftir jarðhræringarnar.
Tilgangur heimsóknarinnar var að gefa fulltrúa UEFA kost á að kynna sér aðstæður þar sem KSÍ myndi, fyrir hönd knattspyrnudeildar Grindavíkur, sækja um styrk í sérstakan hamfarasjóð UEFA (UEFA Emergency Grant).
Í kjölfarið sótti KSÍ um fyrrgreindan styrk. Nefnd á vegum UEFA (Bureau of the UEFA Social and Environmental Sustainability Committee) fjallaði um umsóknina á fundi sínum 19. maí síðastliðinn og samþykkti styrk að upphæð 50.000 evrur (7,3 milljónir íslenskra króna), í samræmi við reglugerð sjóðsins og skilmála um úthlutun úr honum.
Samkvæmt upplýsingum frá UEFA voru óvenju margar umsóknir um styrk úr hamfarasjóðnum að þessu sinni og því afar ánægjulegt að umsókn KSÍ hafi skilað árangri.
Haukur G. Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, þakkar KSÍ og UEFA fyrir aðstoðina.
„Knattspyrnudeild Grindavíkur vill koma á framfæri kærum þökkum til KSÍ og UEFA. Deildin hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum. Náttúruöflin gjöreyðilögðu æfingasvæði og innanhússaðstöðu deildarinnar, en með mikilli eljusemi og dugnaði sjálfboðaliða, þá hefur liðið snúið heim," segir Haukur.
Meistaraflokkur karla hjá Grindavík leikur leiki sína í Lengjudeildinni að nýju á heimavelli sínum í Grindavík.
„Framundan er uppbyggingartími, og ófyrirséður kostnaður til næstu ára, en með stuðningi KSÍ og UEFA getur deildin spyrnt við fótum. Formaður KSÍ og starfsfólk KSÍ hefur verið deildinni gríðarleg hjálp síðustu mánuði. Fyrir það og fyrir stuðning UEFA verður seint þakkað nógsamlega."
Athugasemdir