Newcastle blandar sér í baráttu við Man Utd og Chelsea um Delap - Man City veitir Liverpool samkeppni um Kerkez
   mið 21. maí 2025 22:15
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu frábæran fögnuð Tottenham-manna og bikarinn fara á loft
Mynd: EPA
Tottenham er Evrópudeildarmeistari árið 2025 og mun leika í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, en þetta varð ljóst eftir 1-0 sigur liðsins á Manchester United í Bilbao í kvöld.

Brennan Johnson var maðurinn sem tryggði Tottenham fyrsta titilinn í 17 ár með fremur ljótu marki. Boltinn fór af honum, í Luke Shaw áður en hann náði síðan lítilli snertingu áður en boltinn fór í netið.

Vörn Tottenham hélt vel í síðari hálfleiknum og náði að takmarka dauðafæri United-manna.

Fögnuðurinn var mikill eftir að dómarinn blés í flautuna og má sjá bæði fögnuðinn og bikarinn fara á loft hér fyrir neðan.




Athugasemdir