De Bruyne og Grealish til Napoli? - Rodrygo og Frimpong til Liverpool - Al Hilal vill tvo frá Liverpool - Tveir orðaðir frá Newcastle
Bjarni Jó: Blessaður vertu ég er búinn að vera í þessu í tæp 40 ár
Pablo Aguilera: Vissulega kalt fyrir mig komandi frá Spáni
Jóhann Birnir: Mér fannst það vera rautt spjald
Liam Daði: Höfum alla burði og getu til þess að vinna þessi stærri lið
Haraldur Freyr: Eðlilega pirraður en hvað hann sagði veit ég ekki
Venni: Miðað við aðstæður var þetta ótrúlega fallegt mark
Hemmi Hreiðars: Við þurfum að ná 90 mínútum eins og við tókum seinni hálfleik
John Andrews: Þrjú skot á markið og skoruðu tvö crazy mörk
Óli Hrannar: Brugðumst ekki vel við aðstæðum
Óskar Smári: Eins mikið haglél og ég hef séð frá því í nóvember
Úlfa Dís: Ég var mjög hissa
Siggi Höskulds: Litast af glötuðu veðri
Aldís: Við erum bara með bestu vörnina, það er bara þannig.
Katie Cousins: Höfum það sem til þarf
Anna Rakel: United bara, tek því
„Hefði getað sent en mig langaði svo rosalega mikið að skora"
Berglindi skemmt þegar henni var bent á áhugaverða staðreynd
Jón Óli: Stórkostlegar aðstæður
„Æsifréttamennska að mínu mati“ - Leikið í Grindavík á laugardag
Júlíus Mar: Eitthvað sem mig hefur dreymt um frá því ég kom til liðsins
   sun 23. september 2018 16:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ómar Jó: Skín í gegn að við erum ekki nógu sterkir, hvergi
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Ómar Jóhannsson, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, mætti í viðtal eftir 4-0 tap gegn Víkingum í Pepsi-deildinni í dag.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  4 Víkingur R.

„Lélegt. 4-0 tap, ekki nógu gott - svipað og tímabilið," sagði Ómar aðspurður út í leikinn.

„Liðið í heild klikkar, allt frá þjálfara og stjórn til leikmanna. Það skín í gegn að við erum ekki nógu sterkir, hvergi."

Keflavík er fallið úr deildinni og hefur ekki unnið leik í sumar. Eysteinn Húni Hauksson og Ómar tóku við liðinu á miðju tímabili. Er eitthvað byrjað að ræða þjálfaramálin fyrir næsta tímabil?

„Það er eitthvað lítið, það er einn leikur eftir og við reynum að klára hann eins vel og við getum."

Keflavík sækir Val heim í lokaumferðinni. Keflavík getur haft áhrif á það hvaða lið vinnur titilinn. „Mér er alveg sama hver vinnur titilinn en ég væri til í góðan leik."

Sjáðu viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner