Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 26. júlí 2022 09:38
Elvar Geir Magnússon
Barcelona vill losa Memphis og Juve hefur áhuga
Mynd: EPA
Ítölsku risarnir í Juventus hafa áhuga á að fá hollenska landsliðsmanninn Memphis Depay frá Barcelona.

Börsungar vilja losa Memphis eftir að hafa kræt í Raphinha frá Leeds og Robert Lewandowski frá Bayern München.

Memphis er einnig orðaður við Manchester United, sitt gamla félag, og Newcastle og Leeds.

Hann var markahæsti leikmaður Barcelona á síðasta tímabili. Þessi 28 ára leikmaður skoraði tólf mörk en er ekki í áætlunum Xavi fyrir komandi tímabil.

Xavi hefur sagt Memphis að eins og staðan sé núna þá muni hann verma varamannabekkinn ef hann fer ekki annað.

Memphis gekk í raðir United 2015 eftir að hafa vakið mikla athygli í hollensku deildinni þar sem hann raðaði inn mörkum fyrir PSV Eindhoven. Miklar væntingar voru til hans á Old Trafford en hann var seldur til Lyon eftir aðeins 18 mánuði.
Athugasemdir
banner
banner