Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
Gummi Magg: Erum mættir til að skrifa söguna
Böddi um skiptin óvæntu: Var ekki í tilfinningalegu jafnvægi
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Sameiningaviðræður ÍR og Leiknis: Sumir láta hreinlega tilfinningarnar ráða
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Óskar Smári: Klúbburinn hefur þróast í rétta átt
Markadrottningin komin heim: Voru möguleikar úti en Breiðablik besti kosturinn
   sun 27. maí 2018 19:44
Sverrir Örn Einarsson
Logi: Sölvi tæpur hvenær sem er
Logi þjálfari Víkinga
Logi þjálfari Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar töpuðu í dag sínum öðrum heimaleik í röð þegar þeir fengu Fjölnismenn í heimsókn. Þórir Guðjónsson og Almarr Ormarsson skoruðu mörk gestanna en Alex Freyr Hilmarsson klóraði í bakkann fyrir heimamenn þegar skammt var eftir leiks.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  2 Fjölnir

„Við byrjuðum þennan leik ekki nógu vel, vorum frekar værukærir og seinir í öllum aðgerðum og menn vakna upp við vondan draum í stöðunni 2-0," sagði Logi aðspurður hvað hefði klikkað í leik hans manna í dag.

Sölvi Geir Ottesen miðvörður Víkinga sem hefur byrjað mótið afar vel fór meiddur af velli eftir tæpar 40 mínútur og kom Gunnlaugur Fannar Guðmundsson inná í hans stað. Aðspurður hvort Sölvi hafi verið tæpur fyrir leikinn sagði Logi.

„Sölvi fær einhvern slink á bakið og það hefur ekkert með það að gera hvernig hann kláraði síðasta leik og ég veit ekki hvort ég á að orða það þannig en Sölvi er bara tæpur hvenær sem er."

Víkingum hefur gengið bölvanlega að skora í fyrstu leikjum þessa móts og hafa aðeins sett boltann 5 sinnum í markið í fyrstu 6 umferðum mótisins og þar af þrisvar gegn Stjörnunni í 3.umferð.
Hvernig metur Logi stöðunna á því?

„Við erum ekki nægilega duglegir að skapa okkur færi, við fáum að vísu góð færi og meira að segja eftir að við skorum þetta mark okkar en það er bara þannig að við þurfum að vera duglegri að nýta færin sem við sköpum."
Athugasemdir
banner