Man Utd og Liverpool meðal félaga sem vilja David - City reynir við Cambiaso - Romero eitt helsta skotmark Atletico
   mán 28. apríl 2025 09:30
Elvar Geir Magnússon
Hákon í liði helgarinnar - Sjáðu markið hans
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hákon er í úrvalsliði umferðarinnar.
Hákon er í úrvalsliði umferðarinnar.
Mynd: L'Equipe
Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er í liði umferðarinnar hjá L'Équipe en þetta er í þriðja sinn á tímabilinu sem hann er valinn í það.

Hann hlýtur mikið lof í frönskum fjölmiðlum eftir frammistöðu sína í gær. Hann átti frábæran leik þegar Lille lagði Angers 2-0 í frönsku deildinni.

Hann lagði upp fyrra markið undir lok fyrri hálfleiks þegar Alexsandro skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Hákoni. Hákon bætti svo öðru markinu við eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik og innsiglaði sigurinn. Lille er í 2. sæti deildarinnar með 56 stig þegar þrjár umferðir eru eftir. Það eru aðeins tvö stig niður fyrir Meistaradeildarsæti.


Athugasemdir
banner