Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
   lau 28. ágúst 2021 21:58
Arnar Laufdal Arnarsson
Einar Karl: Ég sagði Hilmari að hlaupa yfir boltann fyrir mig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög sáttur, geðveikt að koma hérna á Hlíðarenda og fá þrjú stig, mikilvæg þrjú stig í baráttunni sem við erum í þannig ég er bara mjög ánægður með liðið og mjög flottur sigur í dag," sagði Einar Karl Ingvarsson leikmaður Stjörnunnar í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Stjarnan

Einar skoraði geggjað aukaspyrnumark undir lok fyrri hálfleiks, var það alltaf planið að Einar myndi taka þessa spyrnu?

„Já ég sagði Hilmari að hlaupa yfir boltann fyrir mig þannig við vorum búnir að ákveða það, ég hitti boltann bara mjög vel og hann fór í markið og gaman að sjá hann í markinu."

Tímabilið hjá Stjörnunni verið undir væntingum en Stjarnan vinnur samt báða leikina gegn ríkjandi Íslandsmeisturunum.

„Kannski erfitt að svara því hvernig það gerist en já það hefur kannski ekkert gengið nógu vel en það er alltaf gott að vinna Val og þessi þrjú stig eru mjög mikilvæg fyrir okkur en erfitt að svara af hverju við vinnum Val tvisvar en þetta var bara góður leikur hjá okkur í dag."

Stjörnumenn eru búnir að bjarga sér frá falli, er eitthvað markmið út tímabilið?

„Bara hugsa um næsta leik og vinna hann, einbeita okkur að næsta verkefni og bara vinna restina, einbeita okkur að sjálfum okkur og reyna klára tímabilið almennilega."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner