Mikið ber á milli Man Utd og Roma í viðræðum um Zirkzee - Chelsea hyggst styrkja miðsvæðið og er orðað við Mainoo og Wharton
   fös 28. nóvember 2025 12:30
Elvar Geir Magnússon
Saka fór á skeljarnar á lúxushóteli
Mynd: EPA
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, er trúlofaður en hann fór á skeljarnar og lúxushóteli í London og bað unnustu sinnar til fimm ára, Tolami Benson.

Saka valdi gríðarlega stóran trúlofunarhring fyrir tilefnið en hann og Benson hafa haldið sambandi sínu fjarri sviðsljósinu.

Þau deila ekki myndum af sér saman á samfélagsmiðlum og eru ekki að fylgja hvort öðru þar.

Þau eru bæði 24 ára og gerðu samband sitt opinbert á HM 2022 í Katar þar sem þau sáust saman í stúkunni í Doha.

Benson hefur unnið í almannatengslum síðustu ár en áður var hún að þjónusta fólk í verslun Harrods.


Athugasemdir
banner