„Mér fannst við skapa okkur mjög mörg færi. Við náðum að nýta eitt mjög vel. Hin ekki eins vel. En mér fannst samt margt jákvætt frá síðasta leik,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir sem leiddi framlínu Stjörnunnar í 1-0 sigri á HK/Víkingum fyrr í kvöld. Stjarnan náði með sigrinum að svara slæmu tapi gegn Grindavík í síðustu umferð og leit mikið betur út aftast á vellinum en þá.
Lestu um leikinn: HK/Víkingur 0 - 1 Stjarnan
„Við vorum miklu þéttari varnarlega og vorum ekki að gefa færi á okkur. Það skiptir ekki máli hvað við skorum mörg mörk á meðan við erum ekki að fá á okkur mörk,“ sagði Harpa og hrósaði andstæðingunum.
„HK/Víkingar eru búnar að vera á flottu rönni. Þær eru virkilega vel þjálfaðar og mjög vel skipulagðar. Greinilega komnar til að vera í Pepsi-deildinni, sem mér finnst mjög ánægjulegt. Þær gáfu okkur mjög góðan leik.“
Yfirburðir Stjörnunnar voru miklir úti á velli en þeim gekk illa að finna mark númer tvö. Þær lágu þungt á HK/Víkingum í uppbótartíma þar sem andstæðingarnir björguðu þrisvar á línu í þremur hornspyrnum í röð.
„Ég held reyndar að eitthvað af þessu hafi verið inni sko,“ sagði Harpa hlæjandi. „Ég vil meina það sko.“
Stjarnan er með 9 stig eftir fimm umferðir og það er ekkert leyndarmál að liðið hefði viljað vera með fleiri stig. Harpa segir að ekki sé hægt að afskrifa Stjörnuna, nú einbeiti liðið sér að einum leik í einu í stað þess að horfa á langtímamarkmið.
„Við þurfum að horfa á einn leik í einu. Reyna að bæta okkar leik og finna út hvernig við þurfum að spila í mótinu í stað þess að horfa á einhver langtímamarkmið sem að ég held að hafi skemmt svolítið fyrir okkur í byrjun. Við erum komin þangað, að horfa á einn leik í einu og nú erum við að detta inn í annað mót og erum mjög spenntar fyrir því. Þetta er ekki búið, sko. Við gerum okkur fulla grein fyrir því.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Hörpu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
























